Árgangur '79 úr GSS

Ef þú mætir ekki 2010, verður þú sótt/ur

06.01.2009 14:23:28 / pétursdóttir

Jesús Guð Dýrlingur kemur til höfuðborgarinnar!

Jæja þá er komið að því. Núna ætlum við úti á landi liðið að sýna þessu malbiksfólki hvað alvöru menning er :d

Hehe.. já allaveganna. Þá er leikfélagið Grímnir í Stykkishólmi að fara að sýna Jesus Guð Dýrlingur í félagsheimilinu á Seltjarnarnesi laugardaginn 10. janúar klukkan 19:00 og 22:00 sem og klukkan 14:00 á sunnudeginum 11. janúar.
Miðaverð er 2.500.- og má panta miða í síma 894-7900 <- ath breytt símanúmer!

Nánari upplýsingar og gagnrýni á sýninguna má finna í þessarri bloggfærslu.

Vonast til þess að sem flestir sjái sér fært um að kíkja - og endilega látið sem flesta vita!

» 0 hafa sagt sína skoðun

31.10.2007 15:40:23 / pétursdóttir

Flashback!

Á bloggrúntinum mínum rakst ég á myndina hérna fyrir neðan af mér (Unu Kristínu) og Guðbjörgu að syngja "Ég á litla mús" í söngvakeppni í grunnskólanum

Ég og Guðbjörg á hátindi ferilsins

Þessi mynd fékk mig til að brosa breitt og ákvað ég þá að leita eftir fleiri myndum af okkur bekkjarsystkynunum

 

Jóhanna María og Margrét Hildur

Hérna eru Jóhanna María og Margrét Hildur í kringum 1990, ég veit ekki með ykkur - en ég man mjög svo eftir þessum kjólum.

 

Nokkrir vaskir sveinar í stiganum í GSS

Hérna höfum við svo mynd frá 1990/1991 af eftirfarandi köppum:Fjórir efstu eru Símon Bergsson Hjaltalín, Þorgeir Snorrason, Hannes Marinó Ellertsson og Hafþór Kristjánsson.
Þrír í miðju eru Þorbjörn Geir Ólafsson, Níels Breiðfjörð Jónsson og Arnþór Ingi Hinriksson.
Fremstir eru Örn Guðbrandsson og Daði Heiðar Sigurþórsson.
Þetta er greinilega um það leiti sem íþróttagallinn var málið (það var reyndar svolítið mikið svoleiðis).

 

Öskudagur

Hérna er það svo öskudagur 1988 eða 1989 og þar höfum við Frá vinstri: Ágúst Jensson, Daði Heiðar Sigurþórsson, Jón þór Eyþórsson, Þorbjörn Geir Ólafsson, Þorgeir Snorrason, Lárus Ragnar Grétarsson og sennilega Kristján Emil Pálsson (f. 1975). Það var vissulega alltaf hey í harðindum að skella sér bara í svartan ruslapoka á öskudaginn ef ekkert annað var í boði

 

Öskudagur

Enn einn öskudagurinn og ég sé ekki betur en að þetta sé Jón Þór sem er að sýna tennurnar og trúlega Daníel þarna á bakvið... ætli þetta sé Steini sem er þarna kappklæddur???

 

Öskudagur

Og gott ef að þetta er ekki hún Matta sem er þarna með pípuna fyrir miðju

 

 

1 maí við verkalýðshúsið

Og þau okkar sem vorum í lúðrasveitinni ættu nú að muna eftir því að vera að spila "Njallan" fyrir utan verkalýðshúsið á 1. maí, þarna má einmitt sjá Valla ásamt fleirum.

 

Árshátíð hjá Tónó

Hérna er greinilega eitthvað samspil hjá Tónó í gangi og má glytta í mig og Sólbjörtu á endinaum og allaveganna Röggu, ég er ekki alveg að koma fyrir mig restinni

Málmdeildin

Og Valli og félagar úr Brassinu að massa þetta... man doldið sterklega eftir þessarri peysu sem Valli er í ;)

 

 

En síðan voru þarna nokkrar myndir af okkar "samtímafólki sem ég mátti til með að henda með...

 

 

Suðrænir dansarar

Og þó svo að þessir suðrænu dansarar séu ekki okkar bekkjarfélagar, þá mátti ég til með að skella þessarri mynd hérna inn. En þetta eru frá vinstri:Guðmundur Haukur Jörgensen, Níels Breiðfjörð Jónsson, Þorgeir Snorrason, Þorbjörn Geir Ólafsson og Kári (?). Allir fæddir 1975.

 

Busarnir

Svo verð ég nú að enda þetta með smá mynd af "fræga fólkinu", nebbla hljómsveitinni Busunum frá því þeir voru "unglingar".

 

En jæja.. ætli ég verði ekki að halda áfram með heimanámið. En það gæti verið gaman að við myndum reyna að safna saman öllum gömlu myndunum á tölvutæku formi fyrir næsta reunion sem er nú bara handan við hornið... 2010 :haha:

 


» 8 hafa sagt sína skoðun

16.10.2007 12:47:33 / pétursdóttir

MONT!

Langaði bara að monta mig af litlu sys sem var að eignast fjallmyndarlegan 20 marka og 58 cm strák á fimmtudaginn í síðustu - sama dag og borgarstjórnin varð kabúmm :D

Montið búið í bili, en ef þið viljið skoða síðuna hjá þeim þá er linkur á hana á blogginu mínu ;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

11.09.2007 11:07:51 / pétursdóttir

Daginn daginn...

lítið hefur verið í gangi hérna á síðunni hjá okkur - enda fólk búið að vera að snúast í ýmsum málum....

 Er það ekki annars rétt hjá mér að tala um síðuna "okkar" - eða hver eru annars þessi "við" sem erum að kíkja hérna inn :$

 

? 

Ég bara spyr 


» 6 hafa sagt sína skoðun

10.06.2007 10:36:18 / pétursdóttir

Hittingurinn!

Eftirfarandi upplýsingar bárust í comment við síðustu grein, og ég ákvað að setja þær hinga, svona þannig að sem flestir myndu taka eftir ;)

 

Best að segja frá þessum hittingi þar sem er smá misskilningur varðandi hann. En hugmyndin er að hafa hitting fyrir brottflutta hólmara en að sjálfsögðu eru alvöru hólmarar líka velkomnir, þetta er sem sagt ekki bekkjarhittingur enda erum við með nefnd sem á að sjá um það eftir 3 ár eða svo. Þeir sem hafa áhuga endilega sendið mér mail á bjorgarna@internet.is og þá get ég sent ykkur póstinn sem ég sendi út og endilega látið hann þá berast til sem flestra og láta fólk vita af sér ef það hefur áhuga svo ég viti nokkurnvegin fjöldann.

kv. Björg Arna

 

En svo var það annað sem ég var að spá.. þegar við hittumst öll saman 2010, er ekki málið að hafa þetta heila helgi, svona þannig að hópurinn nái vel saman? Það voru nefnilega nokkrir sem töluðu um það síðast að við værum rétt að ná að smella saman - og þá bara allt búið :$

 

Hver er ÞÍN skoðun á þessu? 


» 2 hafa sagt sína skoðun

21.05.2007 11:33:46 / pétursdóttir

Sumar og Snjór.

Já - það var doldið spes að líta út um gluggann í morgunn og sjá hvítu slikjuna á jörðinni og snjóinn á bílrúðunum :S

En annars var að ég velta því fyrir mér hvort að þeir sem eru að kíkja hérna inn myndu kannski vilija kvitta fyrir komu - þannig að ég fái ekki Palli-var-einn-í-heiminum komplex hérna.

Svo vil ég endilega biðja ykkur um að skella inn slóðunum af blogginu eða öðru frá ykkur hérna.... þ.e. ef að það er ekki þegar komið, ég var að setja Steina inn í dag :haha:

 Jæja - kveðjur af rannsókninni á lansanum :)

Una Kristín


» 4 hafa sagt sína skoðun

14.05.2007 14:34:48 / pétursdóttir

Gleðilegt sumar!

Alltaf jafn mikið í gangi hérna - en bara vona að fólk verði aðeins virkara í sumarblíðunni... ef að hún lætur þá sjá sig í sumar ;)

 

En annars rakst ég á mynd af dreng sem fólk ætti að kannast við .... þekkirðu ekki kauða?

 

Endilega látið svo heyra í ykkur í sumar - hvað er að frétta og svona lagað.... svo er endilega að reyna að hittast jafnvel eitthvað í sumar og svona :haha: 


» 1 hafa sagt sína skoðun

04.04.2007 14:48:42 / pétursdóttir

Páskar!!!

Hafið það gott um páskana elskurnar mínar!

 

Eitthvað meira að frétta af þessum hitting? 


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.03.2007 01:47:11 / pétursdóttir

Jææja...

Hvernig var þetta nú með þennan umrædda hitting? :S

Ef ég man rétt þá kom þessi hugmynd upprunalega frá Björgu Örnu.... en allaveganna - er ekki málið að reyna að gera eitthvað í þessu????


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.02.2007 14:22:55 / pétursdóttir

Ali Jawara - frá Þóru

Ali Jawara

 

Kæru vinir

Okkur langar til að segja ykkur frá vini okkar honum Ali Jawara. Við kynntumst honum í Gambíu 2005. Þá hafði hann nýlega misst eldri bróður sinn í bílslysi, þegar þeir voru á vegum Rauða Krossins að fara að taka á móti flóttafólki. Ali var samt enn mjög lífsglaður ungur maður þegar við kynntumst honum og fjölskyldu hans. Þá var pabbi hans samt orðin alvarlega veikur af sjúkdómi sem auðvelt er að meðhöndla hér á Íslandi, en mjög erfitt í Gambíu og hann lést stuttu eftir að við fórum frá Gambíu. Nú hefur Ali og fjölskyldan hans misst báðar fyrirvinnur heimilisins.

Í Gambíu býr stórfjölskyldan iðulega saman. Ali býr með móður sinni, systur og manninum hennar og fjórum börnum. Hann er 21 árs og reynir hvað hann getur að verða sér út um vinnu til að brauðfæða fjölskylduna sína. En atvinnutækifærin í Gambíu eru afar fá og hann hefur einungis getað fengið tímabundin verkefni. Fjölskyldan hefur neyðst til að flytja, vera án rafmagns og að komast af með eina máltíð á dag undanfarið. Þann mat hafa þau getað keypt fyrir lán og þann pening sem mágur Ali hefur getað fengið hjá sinni fjölskyldu.

Nú er hljómurinn í rödd Alis allt annar. Hann er beygður og vonlítill um að geta hjálpað fjölskyldunni sinni. Móðir hans er niðurbrotin og börnin oft svöng. Það er þess vegna sem við skrifum þetta bréf. Við erum að reyna að safna pening svo að Ali og fjölskyldan hans geti stofnað rekstur. Von okkar er að okkur takist að safna fyrir bíl svo að Ali og fjölskylda geti orðið leigubílstjórar.

Með ykkar hjálp getum við sent honum smá pening til þess að koma af stað þessum rekstri, kaupa þarf bíl, tryggingar og greiða bensín í einhvern tíma.
Við erum nokkuð vissar um að þetta eigi eftir að nýtast honum, þar sem mikil þörf er á farartækjum milli Brikama þar sem Ali býr og síðan höfuðborgarinnar Banjul, sem er svona um 30 km á slæmum vegum. Þetta er helsti ferðamáti fólks, svokallaðir Shappar, þetta eru bílar sem taka um 8 manns í sæti og keyra fram og til baka svo lengi sem er eftirspurn. Ef okkur tekst að leggja út fyrir þessu verður fjölskyldan hans Ali sjálfstæð á ný og þarf ekki að vera upp á aðra komin. Þau munu hafa sjálfstæðan rekstur og vonandi þegar jafnvægi er komið á reksturinn getur Ali hafið nám en það er hans helsti draumur að nema Information Technology.

Ef þið hafið áhuga á því að leggja Ali og fjölskyldu hans lið þá er söfnunarreikningurinn:
Rn: 1145-05-443827.
Kt: 300179-3049

Með kærri kveðju
Sólrún María Ólafsdóttir og Þóra Kristín Ásgeirsdóttir

 

 

 

 

Ali, Pathe og Sólrún.

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

17.02.2007 17:35:31 / pétursdóttir

En allaveganna..

Þið sem eruð að kíkja hingað inn, endilega tjáið ykkur aðeins, hvað er verið að gera, hvað er að frétta og svona stuff - eða eru þið kannski of merkileg með ykkur til að vilja að lýðurinn viti hvað svona elítu lið eins og þið eruð að bauka :(

Neiii.. það getur ekki verið! :$  .... er það nokkuð :^)

Well ég ætla allavegnna að halda áfram með lærdóminn - og ég minni fólk á að hafa samband ef það vill fá aðgang til að geta líka tjáð sig hérna á síðunni.


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.02.2007 14:05:37 / pétursdóttir

Hittingur!

Eins og glöggir lesendur hafa kannski rekið augun í, þá lét Kalli Smára vita af því að Björg Arna hefði talað um að það gæti verið gaman að hafa smá bekkjarhitting hérna í bænum fyrir burtflutta bekkjarfélaga - hvað segir þú um það.

 Hvernig er best að breiða "boðskapinn" út ... ætli word of mouth dugi????

 Og svo náttla hitt - hvað langar okkur þá að gera - hvað viljum við gera mikið úr þessu?

 Endilega segðu þína skoðun hérna fyrir neðan - hvort sem þú hefur áhuga á hittingi eða ekki - og beindu öllum bekkjarfélögum sem þú ert í bandi við hérna inn svo við getum notað þetta sem sameiginlega spjallmiðil :D

 

Jæja... svo bíður maður bara eftir svörum :$ 


» 7 hafa sagt sína skoðun

09.02.2007 12:09:56 / pétursdóttir

Só tótallý 90's

Þú ert 90´s barn ef þú:

 

Þú getur klárað þessa setningu [ice ice _ _ _ _ ]

Þú manst eftir því þegar það var ennþá spennandi að vakna á laugardagsmorgnum til að horfa á barnaefnið...

Þú færð ennþá "urge" til að segja "NOT" á eftir næstumþví öllu

Það var gert út um málin með "steinn skæri blað" eða "ugla sat á kvisti"...

Þegar lögga og bófi var daglegt brauð

Þegar við fórum í feluleik þangað til við gátum ekki meir

Þegar við vorum vön að hlýða foreldrum okkar...

Þú hlustaðir á útvarpið allan liðlangan daginn til að bíða eftir uppáhaldslaginu þínu, til að taka það upp á kasettutækið..

Þú manst eftir því þegar Super Nindendos og Sega Genisis urðu vinsælir

Þú horfðir alltaf á America's Funniest home videos

Þú horfðir á Home Alone 1, 2, og 3 og reyndir að gera sömu trikk

Þú manst eftir því þegar Jójó voru kúl

Þú horfðir á Batman, Aladín, Turtles og Pónýhestana...

Þú manst eftir sleikjóunum sem voru á hring til að hafa á puttanum..

Þú manst þegar það áttu ekki allir geislaspilara

Þú bjóst til gogg þegar þú varst lítill...

Þú áttir tölvugæludýr ...eða Furbie

Þú hefur ekki alltaf átt tölvu, og það var töff að vera með Netið Og Windows '95 var best

Michael Jordan var aðal hetjan..

Kærleiksbirnirnir

Þú safnaðir lukkutröllum

Og áttir vasadiskó

Þú kannt Macarena dansinn utanað

Þú veist af hverju 23 er kúl tala

Áður en að Myspace varð vinsælt,

Áður en Netið kom og enginn vissi hvað sms var..

Áður en ipod kom til sögunnar

Áður en PlayStation 2 og Xbox voru til,

Þegar strigaskór með blikkljósum voru málið

Og þú leigðir spólur, ekki dvd,

Og það var eiginlega enginn með símanúmerabirti

Og þegar við hringdum í útvarpið til að reyna að fá uppáhalds lagið okkar spilað til að hlusta á í vasadiskóinu

Áður en við áttuðum okkur á því að allt mundi breytast

Hver hefði getað ímyndað sér að við myndum sakna þessara tíma!


» 3 hafa sagt sína skoðun

06.02.2007 21:36:51 / pétursdóttir

Hingað og ekki lengra!

Núna er þessi síðugarmur búinn að liggja niðri allt of lengi og það gerist víst lítið nema að maður asnist til að gera það sjálfur :$ tja allaveganna svona stundum!

Látið nú endilega heyra í ykkur og af ykkur - hvar þið eruð - hvað þið eruð að gera og svona :D ... ég hvet einnig nefndarfélaga til að láta nú ekki sitt eftir liggja og koma þessarri síðu í gang!;)

Tökum okkur nú til og vekjum þessa síðu upp frá dauðum!

» 0 hafa sagt sína skoðun

26.08.2006 17:00:00 / pétursdóttir

Danskir hvað...

Jæja - dönsku búnir, ekki neitt rosalegt húllumhæ þar verð ég að segja :S

Doldið spes að fara að síðu stykkishólmspóstsins og lesa "lofgjörðina" þar - um leið og maður skoðar svo skoðunarkönnunina til hliðar þar sem meira en 50% fannst hátíðin takast illa ;)

Varst þú á staðnum? - Hvað fannst þér 8)

» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3